háfjallaæfingar við sjávarmál
Hvernig æfir maður sig fyrir háfjallaferð þegar maður býr við sjávarmál?
Ég ligg afslöppuð uppí rúmi með tölvuna í fanginu og spái í æfingaplan. Það er rigning og rok úti. Ég er ennþá í bætiefnapásu og súkkulaðið er í seilingarfjarlægð. Best að spá aðeins meira í þetta æfingaplan.
Fólk er með misjafna meðfædda hámarksgetu í súrefnisupptöku. Svo fer það eftir líkamlegu formi hvort við erum fær um að nota þá hámarksgetu. Í háfjallaferðum þurfum við á öllu því súrefni að halda sem við getum mögulega náð í, og þá er skynsamlegt að vera búinn að þjálfa sína hámarks-súrefnisupptöku-getu.
Samkvæmt rannsóknum mínum er þetta málið:
3 mánuðir
byrja að æfa minnst 3 mánuðum áður, helst meira
3-5 x í viku þolþjálfun; útihlaup (af því að mér finnst það gaman)
30-60 mín í einu
70-85% af hámarksgetu (eða 10-20 mín hratt og 4-8 mín hægt)
óreglulega: 1 mínúta á enn meiri hraða til að teygja mörkin enn frekar
1 x í viku fjallganga með 10kg bakpoka
því það er það sem ég er að æfa fyrir
og ég þarf að æfa mig í að fara ekki fram úr sjálfri mér og þ.a.l. springa á limminu
En það eru nú tæpir fjórir mánuðir í gönguna… og það er ennþá rok og rigning. En þetta er gott plan ;-)
Upplýsingar:
Great Outdoors
Runners World
That’s Fit
Outside Online
training for altitude at sea level
How to train for altitude at sea level?
In bed, laptop on my lap, pondering training plans. Outside it’s rainy and windy. I’m on a break from food supplements and the chocolate is within reach. Better ponder this training plan a bit more.
Everybody is born with the ability to reach a certain VO2 max (the maximum amount of oxygen that one’s body can consume). But if you are genetically able to reach a certain VO2 max, and you don’t train, your VO2 max is not as high as it can be. So it would be quite sensible to train for Kilimanjaro.
According to my research, this would be a sensible training plan:
3 months
start training at least 3 months before the hike, earlier if possible
3-5 days a week: highly aerobic activities = running (‘cos I love it)
30-60 min session
70-85% maximum heart rate (or 10-20 min max. and 4-8 min slow)
throw in one minute intervals of higher intensity in order to push the limits
1 day a week hike with a 10kg rucksack
as this is what I’m training for
I also need to learn to pace myself
But the event is still almost four months away… and it’s still rainy and windy outside. Good plan though ;-)
Research:
Great Outdoors
Runners World
That’s Fit
Outside Online
bætiefni sem grenna, örva og kæta
Í leit minni að viðeigandi bætiefnum átti ég ekki von á að lenda í megrun.
Ég er strangtrúuð á að með næringarlegum undirbúningi eigi ég meiri séns á að komast fljúgandi fram af Kilimanjaro. Það er nefnilega ekki allt unnið með að komast á toppinn… þarna uppi verð ég að vera með næga meðvitund til að leggja út vænginn, tékka allar línur, festa mig rétt í búnaðinn… og svo verð ég að hafa næga orku til að ná vængnum á loft og hlaupa fram af. Og því verður súrefnisskorturinn í 6.000 metra hæð versti óvinur minn.
Í svona háfjallagöngum þegar loftið fer að þynnast verður líkaminn æðislega duglegur að framleiða rauð blóðkorn í baráttu sinni við að ná inn meira súrefni, og ég þarf að sjá til þess að það sé til nægur efniviður í þessa starfsemi. Þar sem ég borða ekki kjöt verð ég líka að vera viss um að ég sé ekki að missa af neinum næringarefnum. Ásamt því að borða fjölbreytta og holla fæðu langar mig að taka bætiefni, bara til að vera viss. Svo ég fór á stúfana og fann allskonar gott stöff.
Það var ekki fyrr en ég byrjaði að innbyrða alla þessa hollustu að ég áttaði mig á meðfylgjandi aukaverkunum: Ég er alltaf södd, þyrst í vatn, hef litla sætindaþörf og tífalda orku. Ég er farin að sjá fram á að mæta grönn og spengileg til Tansaníu í lok janúar og skokka upp Kilimanjaro án þess að blása úr nös!
Alltaf södd
Með þaratöflunum á morgnana þamba ég um það bil lítra af vatni og stend þá á blístri og þarf að neyða ofan í mig bætiefnabættan hafragrautinn.
Breytt svefnmynstur
Í lok fyrsta dags á bætiefnum fór ég að sofa kl. 2:30 sem venjulega b-manneskjan ég og vaknaði kl. 6:30 sem endurfædd a-manneskja.
Ofurorka
Venjulega fæ ég mér tvo kaffibolla á morgnana… ég er búin að minnka það í einn og held ég neyðist til að taka kaffið alveg út. Ég hreinlega höndla ekki alla þessa auka orku!
Á komandi dögum mun ég annaðhvort endurskoða skammtana eða stökkbreytast í ofurmanneskju.
Ég set hérna fram nokkra punkta um bætiefnin sem ég fékk í Heilsu… en það er svo miklu miklu meira sem þetta gerir allt saman. Smellið á appelsínugulu linkana til að lesa meira.
Tekið inn með vatni og/eða mat:
Chlorella er ferskvatnsþörungur, hefur verið notað sem orku-aukandi fæða í aldaraðir. Inniheldur járn, kalk, potassium, magnesium, phosphorous, pro-vitamin A, vítamin C, B1, B2, B2, B5, B6, B12, E og K, biotin, inositol, folic acid. Einnig vítamin C, E og K. Hjálpar til við að losa út eiturefni, notað í krabbameins meðferðum.
Kelp er sjávarþörungur, stútfullt af joði, járni, kalki og kalíum. Vatnslosandi og einstaklega góður fyrir konur.
Spirulina er ferskvatnsþörungur. Ríkasta beta karótín fæða sem til er, rík af járni, ‘chlorofyll’, lípíðum, andoxunarefnum, B-12 og mörgu fleiru. Bælir hungurtilfinningu.
Fíflablöð og birki er vatnslosandi lækningatinktúra frá Önnu Rósu.
Bætt í mat eða drykk:
Maca er oft kallað Ginseng Perú og ‘superfood’. Ríkt af próteini, járni, kalki, kalíum, joði, magnesíum, náttúrulegum sykri, trejum. Eykur bæði orku og úthald.
Lucuma inniheldur 14 nauðsynleg snefilefni, þ.á.m. kalíum, natríum, kalk, magnesíum og fosfór. Ásamt því að gefa sætubragð er lucuma glúten frítt, inniheldur andoxunarefni, trefjar og kolvetni. Gott fyrir ónæmiskerfið og hefur verið vinsæl lækningajurt í Suður Ameríku í aldanna rás.
Hemp inniheldur 9 nauðsynlegar amínósýrur. Próteinrík viðbót fyrir grænmetisætur.
Chia fræ stilla blóðsykur, lækka blóðþrýsting, minnkar ‘food craving’, minnkar kaloríu upptöku, tryggir vökvaupptöku, inniheldur meira Omega-3 en lax.
Raw Chocolate Mulberries er sjúklega gott nammi! Hrásúkkulaði er hollt! Mórber eru holl!
Heilsu aðvörun: ég er ekki næringarfræðingur, ekki trúa mér blint í þessum málum!
supplements for superhumans
In my search for suitable food supplements I did not expect to end up on a diet.
I strongly believe that by nutritionally preparing my body I stand a better chance of flying off Kilimanjaro. Making it to the top isn’t everything, see. Once up there I have to be alert enough to spread out my glider, check the lines, fasten my equipment correctly… plus I need enough energy to bring the glider up and run off. The lack of oxygen at 6.000 m is going to be my biggest enemy.
As the air gets thinner at high altitude the body starts producing more red blood cells in an effort to retrieve more oxygen. It’s my job to make sure my body has enough resources to do this efficiently. Additionally, as a non-meat eater, I need to make sure I am getting all the protein I need. On top of choosing healthy foods and cutting out junk I want to add some supplements, just to make sure. So I did a little research and found the good stuff.
It wasn’t until I started consuming all these supplements that I realised the side effects: I’m always full, thirsty, don’t crave sweets and my energy levels are up by 100%. I’m beginning to think I’ll show up in Tanzania by the end of January as painfully thin as a supermodel and sprint up that mountain!
Being full
To down all this stuff in the morning I need about a litre of water and by then I’m so full I have to force feed myself the supplement enhanced oatmeal.
Sleeping pattern change
After the first day I went to sleep at 2:30 in the morning as my normal b-person self and woke up at 6:30 as a new a-person.
Energy levels
Normally I drink two cups of coffee in the morning… I’ve now reduced that to one cup but think I’m forced to cut coffee out completely as I just can’t handle all the extra energy!
In the next few days I will be either re-evaluating my dosage of these supplements or rapidly mutating into a super-human.
Here are a few points on the supplements I got but there is so much more… click the orange links to read about countless other benefits.
Take with water and/or food:
Chlorella has been used as an energy-producing food for centuries. Including iron, calcium, potassium, magnesium, phosphorous, pro-vitamin A, vitamins C, B1, B2, B2, B5, B6, B12, E and K, biotin, inositol, folic acid, plus vitamins C, E and K. Helps rid the body of toxins, used to fight cancer.
Kelp is the number one herb for supplementing iodine. Packed with other necessary nutrients such as iron, calcium and potassium.
Spirulina is often deemed the most nutritionally complete of all food supplements. The richest beta carotene food with a rich supply of iron, chlorofyll and lipids to name but a few.
Fíflablöð og birki is an Icelandic herbal medicine to reduce water retention.
Added to food or drink:
Maca often termed as Peruvian Ginseng and often referred to as having “superfood” properties. High in protein, natural sugars, iron, potassium, iodine, magnesium, calcium, and fiber. Strengthens endurance and energy levels.
Lucuma provides 14 essential trace elements, including a considerable amount of potassium, sodium, calcium, magnesium and phosphorus, while heavy metal content is low. In addition to satisfying your sweet tooth, lucuma is gluten-free and a source of antioxidants, fiber, carbohydrates. Beneficial to the immune system and has been used for centuries in South America for its medicinal properties.
Hemp contains the 9 essential amino acids required for good health. Protein rich supplement for vegetarians and vegans.
Chia control blood sugar, hydrate the body, reduce food cravings, block calorie absorbtion, contain more Omega-3 than salmon.
Raw Chocolate Mulberries is a healthy temptation! Raw chocolate is healthy. Mulberries are healthy.
Health warning: I am not a nutritionist, do not take my word for anything I say here!
Íslendingur hoppar fram af Afrísku fjalli
Hæ, ég heiti Anita og þetta er vefsíða íslenskra ævintýrakvenna í svifvængjaflugi.
Næsta verkefni hér er semsagt að ég flýg svifvæng fram af hæsta frístandandi fjalli heims, Kilimanjaro, í þágu góðgerðamála. Þetta verður í fyrsta og líklega eina skiptið sem Tansanísk yfirvöld leyfa slíkt, og verð ég því fyrsti Íslendingurinn til að fara þarna fram af.
Wings of Kilimanjaro er hópur alþjóðlegra svifvængjaflug-
manna sem með uppátækinu ætla að vekja athygli á og safna til góðgerðamála í Tansaníu.
Hér mun ég blogga um undirbúninginn og ævintýrið. Tveir heppnir stuðningsaðilar munu svo vinna farþegaflug með mér!
Í Mosó sko… ekki Afríku :-)




