Skip to content

Flogið yfir Ísland á svifvæng

Í byrjun júlí leggjum við af stað í mánaðarlanga för um hálendi Íslands fljúgandi á svifvæng og fótgangandi.

Við verðum með ‘græjujeppa’ til að bera hleðslutæki fyrir myndavélar, gps og annað slíkt; tölvu og net-tengingu til að geta deilt ævintýrinu jafnóðum með áhugasömum; sjampó, súkkulaði, prímus og fleiri lúxusvörur.

Frá lúxus-jeppanum munum við svo gera út nokkurra daga naumhyggju flug- og gönguferðir eftir því sem veðuraðstæður leyfa og reyna að komast yfir ákveðin svæði fljúgandi og/eða gangandi með væng og vistir á bakinu.

Við verðum með Spot staðsetningatæki sem sendir rauntíma stikun (e. live-tracking) á netið svo hægt verður að fylgjast náið með ferðum okkar.

Í samvinnu við UN Women á Íslandi verður ævintýrið liður í átaki til að safna styrktaraðilum undir hinu mjög svo viðeigandi slagyrði: Við viljum gefa konum byr undir báða vængi.

 

ÁHRIF SVIFVÆNGJAFLUGS Á OKKUR
Við seldum eigur okkar og kvöddum fjölskyldu, örugga innkomu og Ísland í Desember 2009 undir verkefnaheitinu The Flying Effect. Við höfum síðan ferðast til Nepal, Indlands, Thailands, Malasíu, Indónesíu, Frakklands, Spánar, Grikklands, Marokkó, Englands, Ítalíu, Möltu, Þýskalands, Svíþjóðar, Danmerkur og Færeyja. Á ferðum okkar höfum við hitt fjölmargar áhugaverðar konur og tekið við þær viðtöl sem við birtum hér undir ‘profiles’.

Hér má sjá myndband frá reynslu okkar í Nepal og Indlandi.

 

Það að svífa í loftinu, hátt yfir jörðinni á nælonvæng og treysta algerlega á náttúruöflin og sjálfan sig gefur tilfinningu sem við getum varla lýst öðruvísi en sem fullkomnu frelsi. Út frá þessari sterku tilfinningu og frelsisþrá spratt hugmyndin að verkefninu The Flying Effect.

Með The Flying Effect vildum við reyna að vekja athygli á rétti kvenna um allan heim til frelsis með því að taka ákveðna áhættu sjálfar til að láta drauma okkar rætast.

 

Landmannalaugar by Szczepan Pawluszek

HVAÐ ER SVIFVÆNGJAFLUG?
Svifvængur er einfaldasta og léttasta form flugs sem þekkist í dag. Vængurinn er úr þunnum en sterkum nælondúk með efra og neðra lagi og lofthólfum þar á milli. Á flugi helst hann útblásinn af loftinu sem fyllir hólfin. Lögun hans gefur honum nauðsynlega flugeiginleika eftir sömu lögmálum og eiga við um venjulega flugvélarvængi. Hægt er að stjórna vængnum með því að toga í þar til gerða spotta og með þyngdarfærslu (svipað og á skíðum). Öllum búnaðinum er svo hægt að pakka niður í bakpoka og getur hann vegið allt frá 6 til 25 kíló.

Flug á svifvæng byggist á því að flugmaðurinn finni sér uppstreymi lofts, annars svífur hann bara niður. Uppstreymið getur t.d. verið vindur á leið upp fjallshlíð eða hitauppstreymi. Útsjónarsamur flugmaður getur þannig ferðast langar leiðir. Lengsta flug á Íslandi er 75 km. Erlendis eru lengstu flug á svifvæng yfir 400 km. Skilningur á veðurfræði og hvernig landslag mótar loftstrauma er nauðsynlegur eiginleiki fyrir svifvængjaflugmenn.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.