Íslendingur hoppar fram af Afrísku fjalli
October 4, 2012
Hæ, ég heiti Anita og þetta er vefsíða íslenskra ævintýrakvenna í svifvængjaflugi.
Næsta verkefni hér er semsagt að ég flýg svifvæng fram af hæsta frístandandi fjalli heims, Kilimanjaro, í þágu góðgerðamála. Þetta verður í fyrsta og líklega eina skiptið sem Tansanísk yfirvöld leyfa slíkt, og verð ég því fyrsti Íslendingurinn til að fara þarna fram af.
Wings of Kilimanjaro er hópur alþjóðlegra svifvængjaflug-
manna sem með uppátækinu ætla að vekja athygli á og safna til góðgerðamála í Tansaníu.
Hér mun ég blogga um undirbúninginn og ævintýrið. Tveir heppnir stuðningsaðilar munu svo vinna farþegaflug með mér!
Í Mosó sko… ekki Afríku :-)
No comments yet
