Vængir Kilimanjaro – Kynning
Hvað er nú að gerast?
Í byrjun febrúar 2013 mun ég, ásamt 199 öðrum ofurhugum, arka upp á hæsta frístandandi fjall heims, Kilimanjaro, gjarnan kallað ”þak Afríku”, til þess að henda mér þar fram af á svifvæng. Slík glæfrahegðun er að öllu jöfnu bönnuð í þjóðgarðinum en í þetta eina skipti verður gerð undanþága í þeim tilgangi að safna einni milljón dollara til góðgerðarmála.
Afhverju er ég að standa í þessu?
Mér finnst ómetanlegt að fá tækifæri til að láta gott af mér leiða með því að gera það sem mér finnst skemmtilegast í heiminum; fljúga svifvæng á vit nýrra ævintýra!
Og í hvað fer þessi milljón?
Plant with Purpose vinnur með 38 Tansanískum samfélögum við að endurbyggja og viðhalda skóglendi, en trjám fer ört fækkandi á svæðinu og skógleysið skapar óyfirstíganleg vandamál.
One Foundation vinnur að því að bæta aðgengi heimamanna að hreinu vatni.
Það sem mér finnst frábært við þessi verkefni er að þau vinna mjög náið með heimamönnum og leggja alla áherslu á sjálfbærni og sjálfstæði samfélagsins… frelsi.
Allur kostnaður við ævintýraförina sjálfa er kostuð af okkur fjallaförunum.
Hvernig getur þú verið með?
Til að verkefnið gangi upp þarf hver einasti af þessum 200 þátttakendum að safna $5.000 (615.000,- ISK) og þar kemur þú mér til hjálpar! Ég vil ekki að þú gefir mikið. Ég vil frekar að margir gefi lítið, því að þannig verður stórt verk einfalt, alveg eins og ég vil hafa það :-)
Smelltu hér til að leggja þitt af mörkum og til að taka þátt í þessu einstaka verkefni.
Ást og friður!

